Fyrirtækið á bak við lausnirnar.
Corveria er vöru- og lausnafyrirtæki í Reykjavík. Við þróum hugbúnað, komum hugmyndum í notkun og fylgjum þeim eftir.
Reynsla sem verður til í rekstri.
Eigin vörur gefa okkur beina reynslu af því sem tekur við eftir útgáfu. Við vinnum áfram með lausnirnar, bætum þær og tökum ákvarðanir um næstu skref.
Þessi reynsla nýtist í verkefnum fyrir aðra. Við horfum á það sem lausnin á að gera, hvernig hún verður notuð og hvað þarf til að halda henni gangandi.
Vörur sem við stöndum að.
Anna og Moving to Iceland eru eigin vörur Corveria. Samhliða þeim þróum við sérsniðnar lausnir fyrir viðskiptavini, meðal annars vef Old Icelandic Books.
Traustur kjarni.
Corveria sækir nafn sitt í core, kjarna, og verification, sannprófun. Fyrir okkur felst það í að byggja á skýrum grunni og sannreyna að lausnin skili tilætluðum árangri.
Skýr tilgangur
Við byrjum á því sem lausnin á að gera og þörfum þeirra sem munu nota hana.
Yfirferð í þróun
Við förum yfir framvindu og prófum virkni með markmið verkefnisins að leiðarljósi.
Framhald eftir útgáfu
Við mótum fyrirkomulag rekstrar, viðhalds og áframhaldandi þróunar út frá þörfum lausnarinnar.
Á bak við Corveria.

Þórir Aron Stefánsson
Stofnandi Corveria
Frá fyrsta samtali til útgáfu er beint samband við þann sem þróar lausnina.
Skoða LinkedIn prófíl