Persónuverndarstefna

Gildir frá 17.07.2026 · Corveria ehf. · kt. 590526-1260

Þessi stefna lýsir því hvernig Corveria ehf. fer með persónuupplýsingar á corveria.com. Hún er skrifuð til að vera lesin og segir aðeins það sem vefurinn gerir í raun: hér er hvorki vefgreining né eftirlit með gestum, og þess vegna enginn vafrakökuborði.

1. Ábyrgðaraðili

Ábyrgðaraðili vinnslunnar er Corveria ehf., kt. 590526-1260, 101 Reykjavík. Um vinnsluna gilda lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og persónuverndarreglugerð Evrópusambandsins (GDPR). Fyrirspurnum um persónuvernd er svarað á [email protected].

2. Hvað við vinnum og hvers vegna

corveria.com er kynningarvefur án notendaaðganga. Vinnsla persónuupplýsinga takmarkast við fjögur tilvik.

2.1 Fyrirspurnir gegnum sambandsformið

Þegar þú sendir okkur fyrirspurn gegnum formið á síðunni vinnum við nafn, netfang og efni skilaboðanna. Tilgangurinn er að svara erindinu og eftir atvikum undirbúa tilboð eða samning. Lagagrundvöllurinn er ráðstafanir að þinni beiðni áður en samningur er gerður og lögmætir hagsmunir okkar af því að svara erindum (9. gr. laga nr. 90/2018, sbr. b- og f-lið 1. mgr. 6. gr. GDPR).

2.2 Spjallið við Önnu

Spjallglugginn á síðunni er Anna, spjallmenni sem Corveria smíðar og rekur sjálft á annasvarar.is. Það sem þú skrifar í spjallið er unnið til þess eins að svara þér. Samtölin eru vistuð á innviðum Önnu innan EES og gervigreindarlíkön frá Anthropic og OpenAI mynda svörin, sjá 4. kafla um flutning úr landi. Settu ekki viðkvæmar persónuupplýsingar í spjallið; þeirra er ekki þörf til að svara þér. Lagagrundvöllurinn er lögmætir hagsmunir okkar af því að svara erindum gesta.

2.3 Aðgangsskrár netþjóns

Netþjónninn sem hýsir vefinn skráir IP-tölur og tæknileg atriði um hverja heimsókn, eins og allir vefþjónar. Skrárnar eru eingöngu notaðar til að reka vefinn örugglega og greina bilanir eða árásir, á grundvelli lögmætra hagsmuna. Þær eru ekki notaðar til að fylgjast með hegðun gesta.

2.4 Stillingar í vafranum þínum

Vefurinn vistar val þitt á milli dag- og næturhams í vafranum (localStorage) og texta sem þú byrjar að skrifa í hugmyndareitinn þar til hann er sendur (sessionStorage). Spjallglugginn vistar auðkenni samtals svo það haldist á milli síðna. Þessar upplýsingar verða eftir í vafranum þínum og berast ekki til okkar.

3. Vinnsluaðilar

Við notum fáa, nafngreinda vinnsluaðila:

Hostinger
Hýsing vefþjóns og tölvupósts á netþjónum innan Evrópu.
Web3Forms
Flytur skilaboð úr sambandsforminu í pósthólfið okkar og geymir þau ekki varanlega.
Cloudflare
DNS-þjónusta og varnir fyrir vefinn. Umferð um vefinn fer um dreifikerfi Cloudflare.
Anna Svarar
Spjallið keyrir á innviðum Anna Svarar, annasvarar.is. Undirvinnsluaðilar þjónustunnar, þar á meðal Anthropic, OpenAI og Amazon Web Services, eru taldir upp á annasvarar.is/undirvinnsluadilar.

4. Flutningur út fyrir EES

Hýsing vefsins, tölvupósturinn og vistun spjallsamtala eru innan EES. Þrennt getur borist út fyrir svæðið:

  • Spjallskilaboð geta verið unnin af Anthropic og OpenAI í Bandaríkjunum þegar svör eru mynduð. Flutningurinn byggist á stöðluðum samningsákvæðum ESB (SCC) ásamt mati á áhrifum flutnings. Leitar- og röðunarlíkön spjallsins keyra hjá AWS í Frankfurt, innan EES.
  • Web3Forms keyrir á netþjónum í Bandaríkjunum. Skilaboð úr sambandsforminu eru áframsend til okkar en ekki geymd þar, og tækniskrám þjónustunnar er eytt reglulega.
  • Umferð um vefinn fer um alþjóðlegt dreifikerfi Cloudflare, sem ver hann gegn árásum. Cloudflare vinnur tengigögn, þar á meðal IP-tölur, og er vottað samkvæmt gagnaverndarramma ESB og Bandaríkjanna (EU-US Data Privacy Framework).

5. Varðveislutími

Við geymum ekkert lengur en þörf krefur:

Fyrirspurnir og spjall
Eytt í síðasta lagi tveimur árum eftir síðustu samskipti. Verði af viðskiptasambandi geymast samskipti á meðan það varir.
Bókhaldsgögn
Sjö ár samkvæmt lögum nr. 145/1994 um bókhald.
Aðgangsskrár
Um 90 dagar.
Vafrageymsla
Í vafranum þínum og undir þinni stjórn. Berst aldrei til okkar.

6. Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá aðgang að þeim persónuupplýsingum sem við vinnum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt, takmarka vinnslu, andmæla vinnslu sem byggist á lögmætum hagsmunum og fá upplýsingarnar afhentar á tölvutæku formi. Sendu erindið á [email protected] og við svörum án ótilhlýðilegrar tafar og í síðasta lagi innan mánaðar.

Þú getur einnig kvartað til Persónuverndar, personuvernd.is.

7. Engin vefgreining, engar vafrakökur til eftirlits

corveria.com notar enga vefgreiningarþjónustu og setur engar vafrakökur til eftirlits eða markaðssetningar. Það sem vistast í vafranum þínum (sjá kafla 2.4) er virkni sem vefurinn þarf og ekkert af því berst til þriðja aðila. Þess vegna er enginn vafrakökuborði á síðunni: það er ekkert að samþykkja.

8. Breytingar

Ef vinnslan breytist, til dæmis með nýrri þjónustu á vefnum, uppfærum við stefnuna hér og breytum gildisdagsetningunni efst á síðunni. Stefnan gildir frá 17. júlí 2026.