Þjónustuskilmálar

Gildir frá 17.07.2026 · Corveria ehf. · kt. 590526-1260

Skilmálarnir skiptast í tvo hluta: A-hluti gildir um þjónustu sem Corveria ehf., kt. 590526-1260, 101 Reykjavík („Corveria“, „við“), veitir viðskiptavinum sínum, og B-hluti um notkun vefsins corveria.com. Sameiginleg ákvæði í lokin gilda um hvort tveggja.

A. Þjónusta

A.1 Gildissvið og samningur

Skilmálar þessir gilda um alla þjónustu Corveria: smíði, rekstur og ráðgjöf. Um hvert verkefni er auk þess gert skriflegt tilboð með umfangi, verði og tímalínu og eftir atvikum gerður sérstakur samningur. Stangist ákvæði á gengur tilboðið eða samningurinn framar þessum skilmálum.

Samningur telst kominn á þegar viðskiptavinur samþykkir tilboð innan gildistíma þess eða þegar vinna hefst að beiðni viðskiptavinar.

A.2 Verð og greiðslur

Verð eru samkvæmt tilboði hvers verkefnis og tilgreind án virðisaukaskatts nema annað sé tekið fram. Gjalddagi reiknings er útgáfudagur hans og eindagi 20 dögum síðar. Eftir eindaga reiknast dráttarvextir samkvæmt III. kafla laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Athugasemdir við reikning skulu berast fyrir eindaga.

Verð fastrar rekstrarþjónustu má aðlaga með 30 daga skriflegum fyrirvara, meðal annars vegna breytinga á kostnaði við aðföng í erlendri mynt, svo sem hýsingu og gervigreindarþjónustu.

A.3 Eignarhald og hugverkaréttur

Tilboð hvers verkefnis tilgreinir hvor leiðin gildir um eignarhald á afhentu verki:

  • Kaup: Viðskiptavinur eignast afhent verk að fullu við fullnaðargreiðslu.
  • Rekstrarsamstarf: Corveria á verkið og rekur það. Viðskiptavinur hefur afnotarétt á samningstíma og getur leyst verkið til sín við lok samstarfsins samkvæmt samningi.

Sé ekkert tekið fram gildir fyrri leiðin: eignarhald flyst við fullnaðargreiðslu.

Corveria heldur í öllum tilvikum eftir almennum verkfærum, kóðasöfnum og aðferðum sem ekki eru sérsmíðuð fyrir viðskiptavininn. Efni sem viðskiptavinur leggur til er áfram hans eign. Corveria er heimilt að sýna verkið í verkefnasafni sínu, meðal annars með skjámyndum og hlekk, nema um annað sé samið.

A.4 Smíði og stuðningstímabil

Nýsmíði fylgir stuðningstímabil samkvæmt tilboði, almennt 30 til 60 dagar frá útgáfu, þar sem villur sem rekja má til smíðarinnar eru lagfærðar án endurgjalds. Villur skal tilkynna án ástæðulauss dráttar. Að stuðningstímabili loknu falla lagfæringar og áframhaldandi þróun undir rekstrarsamning eða eru seldar sem sérstök vinna.

A.5 Rekstur

Rekstrarþjónusta samkvæmt samningi felur í sér hýsingu, vöktun, öryggisuppfærslur, afrit og áframhaldandi þróun eftir umfangi samningsins. Corveria vinnur að því að kerfi séu tiltæk og bregst við bilunum á virkum dögum. Skuldbinding um tiltekinn uppitíma eða viðbragðstíma (SLA) gildir aðeins sé um hana samið skriflega.

Uppsagnarfrestur rekstrarsamnings er þrír mánuðir og tekur uppsögn gildi um mánaðamót, nema annað sé samið.

A.6 Skyldur viðskiptavinar

Viðskiptavinur veitir þær upplýsingar og aðganga sem þarf til að vinna verkið. Hann ábyrgist að efni sem hann leggur til brjóti ekki gegn lögum eða réttindum þriðja aðila og að tilskilin leyfi séu til staðar fyrir hugbúnað og efni í hans eigu.

A.7 Ábyrgðartakmarkanir

Bótaréttur vegna þjónustu Corveria takmarkast við beint tjón. Corveria ber ekki ábyrgð á óbeinu eða afleiddu tjóni, þar með talið rekstrartapi, glötuðum gögnum, missi hagnaðar eða viðskiptavildar eða vanefndum viðskiptavinar gagnvart þriðja aðila.

Heildarábyrgð Corveria á hverju tólf mánaða tímabili takmarkast við þá fjárhæð sem viðskiptavinur greiddi fyrir viðkomandi þjónustu á næstliðnum tólf mánuðum. Kröfur verða ekki hafðar uppi þegar meira en tvö ár eru liðin frá því að atvikið sem þær byggjast á átti sér stað. Ófrávíkjanleg réttindi neytenda samkvæmt lögum halda alltaf gildi sínu.

A.8 Óviðráðanleg atvik

Hvorugur aðili ber ábyrgð á vanefndum sem stafa af atvikum utan eðlilegrar stjórnar hans, þar á meðal náttúruhamförum, verkföllum, netárásum og útbreiddum truflunum hjá veitendum hýsingar-, fjarskipta- eða gervigreindarþjónustu. Standi slík atvik lengur en 30 daga samfellt er báðum aðilum heimilt að segja samningi upp án frekari skuldbindinga.

A.9 Vanskil

Sé reikningur ógreiddur eftir eindaga sendir Corveria skriflega áminningu. Sé hann enn ógreiddur 30 dögum eftir eindaga er Corveria heimilt, að undangenginni skriflegri viðvörun, að stöðva þjónustu tímabundið, þar með talið hýsingu. Viðskiptavinur getur allan tímann fengið gögn sín afhent. Gögnum í hýsingu Corveria er ekki eytt fyrr en í fyrsta lagi sex mánuðum eftir að þjónusta stöðvast, og aðeins að undangenginni skriflegri tilkynningu.

A.10 Trúnaður

Aðilar gæta trúnaðar um upplýsingar sem þeir fá um starfsemi, viðskipti og kerfi hvor annars í tengslum við samstarfið. Trúnaðarskyldan helst eftir að samningi lýkur.

A.11 Persónuvernd

Vinni Corveria persónuupplýsingar fyrir hönd viðskiptavinar, til dæmis í rekstrarþjónustu, er viðskiptavinurinn ábyrgðaraðili vinnslunnar og Corveria vinnsluaðili. Um slíka vinnslu er gerður vinnslusamningur. Um vinnslu Corveria sem ábyrgðaraðila fer samkvæmt persónuverndarstefnu félagsins.

A.12 Samningslok og afhending gagna

Við lok samnings fær viðskiptavinur gögn sín afhent á algengu tölvutæku formi án sérstaks gjalds; sama gildir um kóða í samræmi við eignarhald samkvæmt A.3. Umfangsmeiri aðstoð við flutning til annars þjónustuaðila er seld sem sérstök vinna. Aðgangur að kerfum Corveria lokast við samningslok.

B. Notkun corveria.com

B.1 Efni vefsins

Efni corveria.com er birt með fyrirvara um villur og án ábyrgðar á að það eigi við um aðstæður hvers og eins. Efnið, þar á meðal texti, myndir og vörumerki, tilheyrir Corveria eða viðkomandi rétthöfum og má ekki nota í öðrum tilgangi án heimildar.

B.2 Spjallið við Önnu

Spjallið á síðunni er Anna, gervigreindarspjallmenni. Svör hennar eru mynduð af mállíkönum og eru líkindafræðileg: þau geta verið röng, ófullnægjandi eða úrelt og eru hvorki ráðgjöf né skuldbinding af hálfu Corveria. Skriflegt tilboð eða samningur gengur alltaf framar svari úr spjalli.

B.3 Eðlileg notkun

Óheimilt er að misnota sambandsformið eða spjallið, svo sem með ruslpósti, sjálfvirkum fyrirspurnum í miklu magni eða tilraunum til að trufla rekstur vefsins.

Sameiginleg ákvæði

Breytingar á skilmálum

Corveria getur breytt skilmálum þessum og tilkynnir breytingar með að minnsta kosti 30 daga fyrirvara á corveria.com. Breytingar gilda ekki afturvirkt um tilboð sem þegar hafa verið samþykkt.

Lög og varnarþing

Um skilmála þessa og þjónustu Corveria gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur sem ekki tekst að leysa með samtali skal hann rekinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Neytendur geta einnig beint ágreiningi til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa.